

Starfsemin
Skagi er móðurfélag VÍS, Fossa og Íslenskra verðbréfa og stefnir á arðbæran vöxt á sviði tryggingastarfsemi, fjárfestingarbankastarfsemi og eignastýringar.
Hlutverk Skaga er að styðja dótturfélögin með hagræði, krosssölu og viðskiptaþróun að leiðarljósi. Framtíðarskipulag samstæðu býður upp á samkeppnisforskot til framtíðar, skýrari afmörkun á áhættu og skýrari ráðstöfun fjármagns til þess að hámarka arðsemi hluthafa.Framkvæmdastjórn Skaga
Í framkvæmdastjórn sitja Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga, Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri Skaga, Sigrún Helga Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur Skaga, Birgir Örn Arnarson, framkvæmdastóri áhættustýringar Skaga, Anna Rós Ívarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs Skaga ásamt Guðnýju Helgu Herbertsdóttur, forstjóra VÍS trygginga, Steingrími Arnari Finnssyni forstjóra Fossa fjárfestingarbanka og Arnóri Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Íslenskra verðbréfa.

Haraldur I. Þórðarson
Forstjóri

Brynjar Þór Hreinsson
Fjármálastjóri

Guðný Helga Herbertsdóttir
Forstjóri VÍS

Steingrímur Arnar Finnsson
Forstjóri Fossa

Arnór Gunnarsson
Framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa

Sigrún Helga Jóhannsdóttir
Yfirlögfræðingur

Birgir Örn Arnarson
Áhættustýring

Anna Rós Ívarsdóttir
Framkvæmdastjóri mannauðs

VÍS
VÍS er eitt stærsta tryggingafélag landsins og á djúpar rætur í íslensku samfélagi. Félagið var formlega stofnað þegar Samvinnutryggingar og Brunabótafélag Íslands sameinuðust árið 1989 — en Brunabótafélagið rekur sögu sína allt aftur til ársins 1917.
VÍS býður víðtæka tryggingaþjónustu þar sem rík áhersla er lögð á viðeigandi ráðgjöf, skilvirkni, sveigjanleika og góða þjónustu. Meginstarfsemi VÍS er á sviði skaðatrygginga. Helstu tegundir eru eignatryggingar, sjó- og farmtryggingar, lögboðnar og frjálsar ökutækjatryggingar, ábyrgðartryggingar og slysatryggingar.
VÍS á og rekur Líftryggingafélag Íslands, Lífís, sem býður upp á persónutryggingar á borð við líf- og sjúkdómatryggingar auk barnatrygginga.
Framkvæmdastjóri Lífís er Ólafur Njáll Sigurðsson. Í stjórn sitja þau Guðný Helga Herbertsdóttir, Margrét Bjarnadóttir og Valdimar Svavarsson. Varamenn eru þau Marta Guðrún Blöndal og Valtýr Guðmundsson.
Hlutverk VÍS trygginga sem tryggingafélag er að vera traust bakland í óvissu lífsins. Markmiðið er að hjálpa viðskiptavinum sínum að velja viðeigandi tryggingavernd svo þeir séu betur undirbúnir fyrir lífsins ólgusjó. VÍS tryggingar greiddi viðskiptavinum sínum 20,3 milljarða í tjónabætur vegna 37.400 tjóna á síðasta ári.
Fossar fjárfestingarbanki
Fossar eru alhliða fjárfestingarbanki sem þjónustar innlenda og erlenda fjárfesta með áherslu á markaðsviðskipti, fyrirtækjaráðgjöf og eignastýringu. Bankinn var stofnaður árið 2015.
- Starfsmenn Fossa eru reyndir sérfræðingar með viðamikla reynslu á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.
- Fossar eru aðili að kauphöllum Nasdaq á Íslandi, í Stokkhólmi og í Kaupmannahöfn og hafa jafnframt aðgang að alþjóðlegum mörkuðum í gegnum samstarfsaðila.
- Bankinn er í fararbroddi þegar kemur að tengingu íslensks atvinnulífs við alþjóðlegt fjárfestingarumhverfi.
- Fossar hafa verið með afgerandi hlutdeild í veltu á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.
- Leiðandi í viðskiptum erlendra aðila á innlendum markaði á undanförnum árum.
- Ráðgjafar í nýskráningum fyrirtækja í Kauphöll og miðlað blokkarviðskiptum í kjölfarið.
- Leiðandi í frumútgáfum á fyrirtækjaskuldabréfamarkaði og beinum lánveitingum frá erlendum aðilum.
- Brautryðjendur í sjálfbærri fjármögnun innlendra fyrirtækja og sveitarfélaga.
Íslensk verðbréf
Íslensk verðbréf býður upp á fjölbreytt úrval sjóða fyrir almenning og fagfjárfesta auk eignastýringar fyrir fagfjárfesta. Starfsfólk Íslenskra verðbréfa býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af fjármálamörkuðum. Íslensk verðbréf hafa það að markmiði að skila framúrskarandi ávöxtun og árangur fyrir viðskiptavini sína og leggur félagið ríka áherslu á traust og langtímaárangur.
- Árið 2025 sameinuðust SIV eignastýring og ÍV sjóðir undir nafni Íslenskra verðbréfa en það síðastnefnda var stofnað árið 1987.
- Í lok árs 2024 voru eignir í stýringu Íslenskra verðbréfa tæplega 200 milljarðar króna.
- Eignir í stýringu jukust um 38 milljarða frá fyrra ári.

Samstæða Skaga hefur nú lokið sínu fyrsta starfsári og hefur verið gríðarlega ánægjulegt að sjá markmið um vöxt á árinu verða að veruleika.