Hoppa yfir valmynd

Íslensk verð­bréf - öflugt eign­a­stýr­ing­ar­félag verður til

Íslensk verðbréf hf., sameinað félag SIV eignastýringar og ÍV sjóða, hóf formlega starfsemi þann 31. mars 2025. Með samrunanum varð til öflugt eigna- og sjóðastýringarfélag sem byggir á víðtækri reynslu starfsfólks með starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri. Sameinað félag var með 196 ma.kr. í stýringu í upphafi árs og námu eignir í stýringu í lok árs um 229 ma.kr. Eignir í stýringu jukust því um 32 ma.kr., eða rúm 16%, þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður og hátt vaxtastig.

Arnór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa

Vaxtalækkanir létu á sér standa á árinu, þrátt fyrir væntingar um að meginvextir Seðlabanka Íslands myndu lækka. Verðbólga reyndist þrálát og tólf mánaða taktur breyttist lítið yfir árið og nam 4,5% í lok árs. Meginvextir lækkuðu í 7,25% á árinu eftir að hafa staðið í 8,50% í upphafi þess. Skuldabréfamarkaður skilaði ágætri ávöxtun á árinu en hlutabréfamarkaður reyndist þyngri. Árið hófst með talsverðum lækkunum á hlutabréfaverði, en undir lok árs tóku markaðir við sér, þó að helstu hlutabréfavísitölur hafi endað lægra en í upphafi árs.

Félagið býður upp á eignastýringar í formi sérgreindra eignasafna en rekur auk þess opna sjóði fyrir almenna fjárfesta og fagfjárfesta, auk lokaðra afurða fyrir fagfjárfesta. Eftir sameininguna er vöruframboð félagsins með því fjölbreyttara sem þekkist hjá sambærilegum félögum og geta viðskiptavinir valið úr afurðum í öllum helstu eignaflokkum, jafnt innanlands sem erlendis.

Ávöxtun afurða félagsins gekk vel á árinu og annað árið í röð var félagið með hæstu ávöxtun innlendra rekstrarfélaga. Árið 2025 hækkaði ÍV Alþjóðlegur hlutabréfasjóður mest allra sjóða en ávöxtun sjóðsins var 19,9% á árinu. Sjóðir félagsins í flokkum innlendra hlutabréfa og skammtímasjóða voru einnig ofarlega á lista yfir árangur liðins árs.

Vöxtur félagsins á árinu kom til annars vegar vegna stofnunar sjóða um lánsfjármögnun og hins vegar vegna innflæðis í sérgreind söfn í eignastýringu félagsins. Íslensk verðbréf leggja áherslu á sjóði um fjármögnun fyrirtækja og vann félagið markvisst að því að efla þá starfsemi á árinu. SIV Credit Fund II slhf. var stofnaður í ágúst mánuði en sjóðurinn var um 13 ma.kr. Sjóðurinn er annar í röðinni en SIV Credit Fund I slhf. var stofnaður árið 2023. Sjóðirnir einblína fyrst og fremst á verðtryggða lánsfjármögnun til lengri tíma. Í október hófst rekstur SIV Alternative Credit Fund með rúmlega 5 ma. króna áskriftarloforði fjárfesta en með stofnun sjóðsins útvíkkar félagið framboð sitt í lánsfjármögnun enda einblínir sjóðurinn á óverðtryggða fjármögnun til meðallangs tíma.

Á árinu 2025 hóf félagið markaðssetningu sjóðaframboðs til viðskiptavina VÍS trygginga, systurfélags Íslenskra verðbréfa. Einstaklingar á Íslandi eiga 1.800 ma.kr. í innlánum enda hafa bankar á Íslandi markvisst markaðssett innlán sem hagkvæman sparnaðarkost fyrir almenning, hvort sem er til skemmri tíma eða lengri tíma. Í skilaboðum ÍV er lögð áhersla á að horfa til sjóðaformsins í sparnaði, gefa peningunum tíma til að safnast upp og að tækifæri sé í að fjárfesta í sjóðum frekar en innlánum í leit að hærri ávöxtun. Mikilvægt er að horfa til fjárfestingatímans þegar fjárfestingakostur er valinn en því lengri sem tíminn því meiri líkur eru á því að innlán gefi lægstu ávöxtun og aðrir kostir líkt og innlendir eða erlendir hlutabréfasjóðir gefi af sér talsvert hærri ávöxtun. Gefðu þér tíma fyrir peningana þína og leyfðu peningunum að vaxa með þér.

Við hjá Íslenskum verðbréfum sjáum mörg tækifæri í því sem framundan er. Íslenskt hagkerfi stendur vel þrátt fyrir hátt vaxtastig en vonast er þó til að Seðlabanki Íslands færi meginvexti nær því sem hagkvæmt getur talist þegar líður á árið. Fjárfestingatækifærin leynast víða og munum við áfram bjóða viðskiptavinum okkar góða langtímaávöxtun í fjölbreyttum afurðum byggða á faglegum vinnubrögðum reynslumikils teymis fjárfestinga- og sjóðstjóra.

Á árinu 2025 hófust viðræður um mögulega sameiningu Skaga og Íslandsbanka. Ef af verður gæti orðið til stærsta eignastýringarfélag landsins með sameiningu Íslenskra verðbréfa og Íslandssjóða. Ef samruninn raungerist ekki sjáum við mörg tækifæri í því umhverfi sem er og verður. Ég er mjög spenntur fyrir vegferðinni sem framundan er og við hjá Íslenskum verðbréfum lítum björtum augum til komandi árs.

Arnór Gunnarsson
Framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa

Meira áhugavert efni

Árið 2025

Árið 2025 var viðburðarríkt ár hjá samstæðu Skaga. Góður árangur var í grunnrekstri en öll félög innan samstæðunnar eru í miklum vaxtarfasa.

Lesa meira

Starfsemin

Skagi er móðurfélag VÍS, Fossa og Íslenskra verðbréfa og stefnir á arðbæran vöxt á sviði tryggingastarfsemi, fjárfestingarbankastarfsemi og eignastýringar.

Lesa meira

Sjálfbærni

Við viljum að starfsemi okkar og þjónusta stuðli að sameiginlegum ávinningi fyrir allt samfélagið.

Lesa meira

Lykiltölur

Helstu lykiltölur úr rekstri félagsins árið 2025.

Lesa meira

Ávarp stjórnarformanns

Árið 2025 var að mörgu leyti sterkt rekstrarár hjá samstæðu Skaga. Nú, þremur árum eftir að við kynntum breytta framtíðarsýn fyrir Vátryggingafélag Íslands hf. má segja að við séum byrjuð að uppskera af okkar vinnu.

Lesa meira

Ávarp forstjóra

Það má segja að árið 2025 sé árið þar sem við byrjuðum að uppskera eftir tímabil stefnumótunar og samþættingar árin á undan.

Lesa meira