Lykiltölur ársins 2025
Samstæðan
Tryggingastarfsemi
- Áframhaldandi sterkur tekjuvöxtur í tryggingastarfsemi VÍS sem óx um 9,5% á milli ára.
- Tekjuvöxtur í líf- og sjúkdómatryggingum nam 12,2% milli ára.
- Samsett hlutfall var 90,7% (2024: 94,9%) og er vel umfram upphafleg markmið ársins um <94%.
- Kostnaðarhlutfall var 18,1% (2024: 19,1%).
- Afkoma af vátryggingasamningum nam 2.970 m.kr. (2024: 1.479.kr.) en það er besta afkoma af tryggingarrekstri frá stofnun félagsins.
Fjármálastarfsemi
- Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 3.188 m.kr. (2024: 2.342m.kr.) sem er 36% vöxtur á milli ára og tekjumarkmið um > 3.100 m.kr. í fjármálastarfsemi náðust.
- Eignir í stýringu (e. AuM) stóðu í 253 ma.kr. við lok tímabilsins og nam vöxtur um 26 ma.kr. á milli ára og markmið um að ná >250 milljörðum í stýringu hafa einnig náðst.
- Afkoma af fjármálastarfsemi var 238 m.kr. fyrir skatta (2024: 18 m.kr.). Jákvæður skattur leiðir til afkomu eftir skatta uppá 299 m.kr. í fjármálastarfsemi, sem samsvarar 9,3% arðsemi efnislegs eiginfjár í fjármálastarfsemi.
Fjárfestingar
- Fjárfestingartekjur námu 2.355 m.kr (2024: 3.707 m.kr.) sem samsvarar 5,2% ávöxtun (2024: 8,3%) sem kemur að mestu fram á fjórða ársfjórðungi (4,0%).
- Ávöxtun af fjárfestingum undir markmiði og örlítið undir viðmiðunarvísitölu á tímabilinu.
- Hreinar tekjur af fjárfestingum voru jákvæðar um 20 m.kr. (2024: 1.760 m.kr.) en þær litast af neikvæðri ávöxtun skráðra hlutabréfa og háum fjármagnsliðum.
Fjárhagsleg markmið
Markmið ársins 2026
Áætlun samstæðu Skaga fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að hagnaður verði 4,1 milljarðar króna eftir skatta sem samsvarar 17% arðsemi eiginfjár en markmið félagsins er að skila yfir 15% arðsemi eiginfjár.
Rekstrarhorfur Skaga fyrir fjárhagsárið 2026 eru eftirfarandi:
- Samsett hlutfall í tryggingarekstri: 92-95%, markmið <93,5%
- Tekjur í fjármálastarfsemi: 3.300-3.800m, markmið >3.500m
- Ávöxtun fjárfestingasafns: Markmið >9,5%
Upplýst verður um horfur í samsettu hlutfalli í tryggingastarfsemi, og tekjum í fjármálastarfsemi ef þær breytast frá þeim vikmörkum sem kynnt eru. Vænt ávöxtun byggir á forsendum um vaxtastig og fjárfestingarstefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá væntri ávöxtun fjárfestingaeigna eða frávik frá áætluðum hagnaði.