Ávarp stjórnarformanns 2025
Sterk samstæða Skaga
Árið 2025 var að mörgu leyti sterkt rekstrarár hjá samstæðu Skaga. Nú, þremur árum eftir að við kynntum breytta framtíðarsýn fyrir Vátryggingafélag Íslands hf. má segja að við séum byrjuð að uppskera af okkar vinnu.

Eftir mikið umbreytingarár árið 2024, þar sem við færðum okkur í núverandi móðurfélagsfyrirkomulag og keyptum Íslensk verðbréf inn í samstæðuna, var áhersla lögð á innri vöxt og aukna arðsemi af rekstri, hvort sem er í vátryggingar- eða fjármálastarfsemi félagsins. Það verkefni hefur gengið vel þó við teljum okkur enn eiga talsvert inni.
Vátryggingarekstur samstæðunnar hefur gengið afburða vel undanfarið, en VÍS hefur stórbætt afkomu af vátryggingum á sama tíma og félagið vex hraðast allra tryggingafélaga. Guðný Helga og hennar teymi eiga mikið hrós skilið fyrir umbreytinguna sem hefur átt sér stað hjá félaginu síðustu misseri.
Fjármálastarfsemi félagsins heldur áfram að vaxa, hvort sem horft er til Íslenskra verðbréfa eða Fossa fjárfestingarbanka. Íslensk verðbréf juku eignir í stýringu á árinu mest allra eignarstýringarfélaga á meðan Fossar héldu áfram miklum tekjuvexti, en tekjuvöxtur í fjármálastarfsemi nam 36% á árinu. Ánægjulegt er að sjá að tekjuvöxtur er nú í auknum mæli farinn að skila sér í afkomu, en afgangur af rekstri hjá fjármálastarfsemi félagsins nam um 235m fyrir skatta á árinu.
Það var alveg ljóst frá byrjun að það væri mikið verkefni skala upp fjárfestingarbanka og byggja samhliða því upp sterka eignastýringarstarfsemi. Verkefnið hefur hins vegar heilt yfir gengið vel og síðustu tvö ár höfum við séð stöðugan afkomubata milli fjórðunga. Þrátt fyrir það munum við áfram leggja lykiláherslu á bætta afkomu af rekstri í fjármálastarfsemi á komandi misserum og við höfum mikla trú á báðum félögum í þeim efnum.
Á árinu munum við sömuleiðis halda áfram þeirri vegferð að ná fram auknu hagræði innan samstæðunnar og halda þannig aftur af hækkunum á rekstrarkostnaði.
Samruni Skaga og Íslandsbanka
Þann 6. október 2025 tilkynntum við samrunaviðræður milli Skaga og Íslandsbanka. Það er okkar trú á að félögin tvö falli einstaklega vel saman og að sameinað félag verði enn betur í stakk búið að búa til virði fyrir viðskiptavini og hluthafa. Við sjáum mikil tækifæri í því að samþætta viðskiptamódel félaganna og byggja enn frekar á góðu samstarfi milli VÍS og Íslandsbanka. Þá mun sameinað félag verða leiðandi á eignastýringar- og fjárfestingarbankasviði.
Aðalfundur 2025
Stjórn félagsins mun á aðalfundi 2025 leggja til að félagið greiði hluthöfum arð sem nemur 0,391 kr. á hlut fyrir reikningsárið 2025 sem jafngildir 750 milljón krónum, að teknu tilliti til eigin bréfa. Arðgreiðslan samsvarar um 40% af hagnaði ársins eftir skatta en það er í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins.
Á síðasta ári nam arðgreiðsla 500 milljónum króna, sem var undir arðgreiðslustefnu vegna fjárfestinga í innri og ytri vexti félagsins. Þá er ánægjulegt að nefna að Skagi auk dótturfélaganna VÍS trygginga og Fossa fjárfestingarbanka hlutu öll á árinu viðurkenningu Stjórnvísis fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.
Stefán Héðinn Stefánsson
Stjórnarformaður Skaga