Ávarp forstjóra 2025
Stórbættur grunnrekstur samstæðu Skaga
Breyttar áherslur skila sér í aukinni afkomu. Það má segja að árið 2025 sé árið þar sem við byrjuðum að uppskera eftir tímabil stefnumótunar og samþættingar árin á undan. Tekjur í grunnrekstri samstæðunnar jukust um 11% en afkoma af hans þrefaldaðist milli ára, úr 800 milljónum í rúmlega 2.400 milljónir. Árið var einstaklega gott í tryggingarekstri, þar sem VÍS skilaði sinni bestu afkomu af tryggingum í sögu félagsins. Áhersla okkar á tekjuvöxt í fjármálastarfseminni undanfarin ár er farin að skila sér í aukinni stærðarhagkvæmni og betri arðsemi samhliða því, en afkoma af fjármálastarfsemi jókst verulega á milli ára, úr 18 milljónum fyrir skatt í 238 milljónir fyrir skatt.

Þessi mikli afkomubati sem skilaði sér á síðasta rekstrarári er að verulegu leyti kominn til vegna þeirrar stefnu sem við settum okkur árið 2023 þegar nýtt sameinað félag VÍS, Fossa og SIV varð til.
Í tryggingastarfsemi höfum við breytt allri nálgun við sölu og markaðsstarf með það að markmiði að ná til baka markaðshlutdeild sem hafði tapast árin áður og auka ánægju viðskiptavina. Í dag vex VÍS hraðast allra tryggingafélaga og jukust iðgjöld VÍS á árinu raunar meira í krónum talið heldur en hjá öllum samkeppnisaðilunum til samans. Þá hefur ánægja viðskiptavina stóraukist og hefur ekki mælst hærri í yfir 20 ár.
Í fjármálastarfsemi hefur lykiláhersla verið lögð á að fjölga tekjustoðum og auka vægi reglulegra tekna s.s. vaxtamunar og samningsbundinna þóknanatekna. Mjög ánægjulegt hefur verið að sjá mikinn vöxt í nýrri tekjustoðum Fossa, svo sem lánasviðs og eigin viðskipta,en tekjur lánasviðs tæplega tvöfölduðustmilli ára. Þá hefur vöxtur eigna í stýringu hjá Íslenskum verðbréfum gengið vel, en eignir í stýringu jukust um 16,3%, og óx félagið hraðastrekstrarfélaga landsins á árinu sem leið.
Þrátt fyrir góðan árangur í grunnrekstri samstæðunnar litast heildarniðurstaða ársins af því að afkoma af fjárfestingastarfsemi var nokkuð undir markmiðum á árinu. Það skýrist að mestu af dræmri ávöxtun skráðra hlutabréfa á árinu sem leið en árið 2025 var um margt erfitt ár á hlutabréfamörkuðum vegna hás vaxtastigs, verðbólgu og umrótum á alþjóðasviðinu. Við val á fjárfestingum er þó hugsað til lengri tíma en árs í senn og við höfum mikla trú á samsetningu safnsins til lengri tíma.
Samþætting félaga í samstæðu hefur gengið vel sem hefur birst bæði á tekju- og kostnaðarhlið. Íslensk verðbréf komu ný inn í samstæðu undir lok árs 2024 og gekk vel að samþætta rekstur félagsins inn í samstæðu Skaga og ná fram kostnaðarhagræði af samrunanum. Lögð hefur verið áhersla á krosssölu milli félaga og hefur sjóðaframboð Íslenskra verðbréfa verið kynnt viðskiptavinum VÍS undanfarna mánuði.
Þann 6. október 2025 tilkynntum við um samrunaviðræður Skaga við Íslandsbanka. Við sjáum mikil tækifæri í sameiningu félaganna með því að innleiða samþætt viðskiptamódel sem miðar að styrkleikum beggja félaga. Sameinað félag verður leiðandi á banka- og tryggingamarkaði auk þess sem samruninn býr til öflugri fjárfestingarbanka- og eignastýringarstarfsemi með fjölmörg tækifæri til frekari sóknar. Skýr tækifæri eru til staðar til að auka þjónustu við viðskiptavini, auka arðsemi með hagkvæmari fjárhagsskipan og auknum umsvifum í eigna- og sjóðastýringu sem myndast við samrunann.
Haraldur I. Þórðarson
Forstjóri Skaga