Ávarp forstjóra VÍS 2025
Viðsnúningur hjá VÍS heldur áfram
Árið 2025 var eitt besta ár í tryggingarekstri í sögu VÍS. Við náðum kraftmiklum vexti í tryggingastarfsemi, bættum rekstur og styrktum stöðu félagsins til framtíðar. Tekjur af vátryggingasamningum jukust verulega milli ára eða 9,5% og einnig var mikil aukning í sölu líf- og sjúkdómatrygginga og jukust iðgjöld þar um 12,2%. Þá hefur kostnaðarhlutfall haldið áfram að lækka og nemur nú 18,1%. Samsett hlutfall batnaði áfram og nam 90,7%.Afkoma af tryggingastarfseminni tvöfaldast milli ára og nam tæpum 3 milljörðum kr en það er besta niðurstaða af tryggingastarfsemi í sögu félagsins. Þetta endurspeglar markvissa áherslu okkar á hagkvæman rekstur og arðbæran vöxt.

Verulegur afkomubati
Afkomubati á tryggingafélaginu er verulegur frá því að við innleiddum breytingar á starfsemi félagsins árið 2023 og hafa tekjur vaxið um tæpt 21% á meðan kostnaður og tjón hafa aukist um 10% yfir tímabilið.
Vöxturinn er skýr staðfesting á trausti markaðarins og að þjónusta okkar og nálgun höfðar til breiðari hóps en áður. Um leið sinntum við fjölda tjóna af fagmennsku og umhyggju – því á bak við hverja tilkynningu er einstaklingur eða fyrirtæki sem treystir á VÍS þegar mest á reynir. Það hefur oft verið sagt að tjón komi ekki í meðaltölum en við leggjum metnað í að vera til staðar þegar tjónin henda og lifa tilganginn okkar að vera traust bakland í óvissu lífsins.
Fjárfestingar VÍS 2025
Fjárfestingartekjur ársins 2025 námu um 2,4 ma.kr. og var heildarávöxtun eignasafnsins 5,2%. Skuldabréf báru uppi afkomu safnsins á árinu og skiluðu ávöxtun upp á tæp 9%, þar sem bæði afkoma af ríkisskuldabréfum sem og öðrum skuldabréfum var góð. Á móti skiluðu hlutabréf neikvæðri ávöxtun en skráð hlutabréf lækkuðu um 9% og samanlögð afkoma skráðra og óskráðra hlutabréfa nam rúmlega 300 m.kr. lækkun. Hlutabréfamarkaðir voru sveiflukenndir á árinu og þrátt fyrir góða hækkun á fjórða ársfjórðungi þá enduðu helstu hlutabréfavísitölur niður á árinu.
Ánægja viðskiptavina í forgrunni
Við höfum sett okkur skýrt markmið um að vera best í þjónustu á tryggingamarkaði. Við erum auðmjúk gagnvart því að við getum alltaf bætt okkur en niðurstöður ársins sýna að okkur miðar vel áfram og erum á réttri leið. Meðmælatryggð jókst mest hjá VÍS af öllum tryggingafélögum á árinu og allar mælingar á ánægju styðja það að viðskiptavinir VÍS eru stöðugt að verða ánægðari. Þeirri vegferð er ekki nærri lokið og munum við halda áfram að kynna nýjungar sem miða að því að bæta upplifun viðskiptavina okkar.
Nær viðskiptavinum um allt land
Hluti af stefnu okkar er að vera aðgengileg viðskiptavinum okkar, hvort sem það er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Við opnuðum nýja þjónustuskrifstofu á Akranesi eftir átta ára fjarveru og fylgdum þar með eftir opnun í Reykjanesbæ árið á undan. Þá opnuðum við einnig nýja og endurbætta skrifstofu á Selfossi.
Þessi skref eru liður í áherslu okkar á að styrkja viðveru VÍS á landsbyggðinni og efla tengsl við einstaklinga og fyrirtæki um allt land.
Sókn byggð á skýrri stefnu
Á árinu hófum við markvissa vinnu við að rýna þá stefnu sem við settum okkur árið 2023. Sú vinna hefur skerpt fókus okkar enn frekar. Stærsta verkefni VÍS er að verða best í þjónustu, á sama tíma og við höldum áfram krafti í sókninni og vexti félagsins. Þessi tvö markmið fara saman – framúrskarandi þjónusta er forsenda sjálfbærs vaxtar.
Í upphafi árs tilkynntum við um samstarf við Íslandsbanka og í maí var útfærsla þess tilbúin gagnvart viðskiptavinum. Samstarfið hefur gengið afar vel. Viðskiptavinir Íslandsbanka sjá nú yfirlit yfir tryggingar sínar í appi bankans og njóta vildarkjara hjá VÍS. Við héldum einnig sameiginlega fræðslufundi, meðal annars um íbúðalán og tryggingar við fyrstu kaup. Seinni hluta árs var tilkynnt um áform um sameiningu félaganna og stendur það ferli nú yfir.
Forvarnir eru órjúfanlegur hluti af starfsemi VÍS. Við héldum öfluga forvarnarráðstefnu, veittum forvarnarverðlaun VÍS, gáfum flotgalla til Slysavarnarskóla sjómanna í 15. sinn, héldum skyndihjálparnámskeið fyrir nýja foreldra, afhentum VÍS-bikarinn í körfuboltanum og tókum virkan þátt í bæjarhátíðum víða um land.
Fleiri viðskiptavinir – færri handtök
Við leitum stöðugt leiða til að ná fram stærðhagkvæmni í starfseminni með því að rýna viðskiptaferli og nýta tæknilausnir til að einfalda bæði viðskiptavinum og starfsfólki lífið. Fleiri tryggingar bættust í netverslunina okkar og við tókum stór skref í að einfalda alla innri vinnslu í fyrirtækjaþjónustu til að efla framlínu í bæði sölu og þjónustu. Til viðbótar stórbættum við aðgengi að upplýsingum um fyrirtækjatryggingar með nýjum og endurbættum fyrirtækjasíðum. Á árinu stigum við áfram skref í að bæta utanumhald og nýtingu á viðskiptavinagögnum í sölu og þjónustu. Undir lok árs gerðum við breytingar á skipuriti til að skerpa enn frekar á áherslum um að tryggja framúrskarandi þjónustuupplifun og einföldun fyrir okkar viðskiptavini.
Tilgangur sem skapar árangur
Árangur ársins sýnir skýrt að VÍS er á réttri leið. Við höfum náð settum markmiðum um vöxt, bætt rekstrarafkomu og aukið ánægju viðskiptavina. Það styrkir stöðu okkar á markaði – en fyrst og fremst staðfestir að sú forgangsröðun sem við höfum valið er rétt.
Árangur í tölum verður þó ekki til af sjálfu sér. Hann er afleiðing markvissrar stefnu, skýrra ákvarðana og ekki síst öflugs starfsfólks sem leggur sig fram, dag eftir dag. Fyrir það vil ég þakka sérstaklega.
Tilgangur VÍS er skýr. Við erum bakland viðskiptavina okkar þegar mest á reynir. Þegar óvænt áföll verða, skiptir máli að geta treyst á félag sem stendur við skuldbindingar sínar, bregst hratt við og leysir mál af fagmennsku og festu – og þegar við á, af mannlegri umhyggju.
Þessi ábyrgð kallar á að við höldum áfram að gera kröfur til okkar sjálfra. Markmiðið er einfalt en metnaðarfullt: að vera leiðandi í þjónustu og byggja áfram upp heilbrigðan, sjálfbæran vöxt. Með sterkri liðsheild, skýrri stefnu og sameiginlegri sýn höfum við lagt traustan grunn að áframhaldandi árangri.
Guðný Helga Herbertsdóttir
Forstjóri VÍS trygginga