Hoppa yfir valmynd

Sterkur vöxtur hjá Fossum fjár­fest­ing­ar­banka

Rekstur Fossa skilaði hagnaði upp á 222 m.kr. fyrir skatt og 286 m.kr. eftir skatt. Rekstrartekjur bankans voru 2,3 ma.kr. og jukust um 544 m.kr. frá fyrra ári, sem samsvarar 31% aukningu.

Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka
  • Vaxtatekjur tvöfölduðust á árinu og námu alls 456 m.kr., sem má einkum rekja til stækkunar lánabókar og framvirkra samninga í hlutabréfum. 
  • Þóknanatekjur voru stærsti hluti tekna Fossa en þær voru tæplega 1,7 ma. kr. og jukust um 313 m.kr. milli ára, eða um 23%,  
  • Fjármunatekjur voru sterkar í miklu ölduróti á mörkuðum, námu alls 152 m.kr. og jukust um 25% milli ára. Rekstrargjöld bankans námu alls 2 ma.kr. og hækkuðu um 13% á árinu. 

Eitt af helstu markmiðum í rekstri Fossa var áframhaldandi arðbær vöxtur efnahags. Markmiðið var að skala upp efnahag bankans á nær óbreyttum kostnaðargrunni milli ára. Í því ljósi er ánægjulegt að efnahagurinn óx um 16% á árinu og nam um 25 mö.kr. í lok árs. Mikil áhersla er lögð á að auka endurteknar tekjur bankans (hreinar vaxtatekjur, tekjur af eignum í stýringu og þóknanir af viðskiptavöktum og þóknanir af lánasafni og verðbréfafjármögnun) sem hlutfall af rekstarkostnaði til að byggja undir aukna arðsemi félagsins og stöðugleika í rekstri. Eins og stefnt var að óx hlutfallið úr 38% frá 2024 upp í um 51% í árslok 2025. Á næstu tveimur árum stefnir bankinn að því að endurteknar tekjur nemi um 70% af rekstrarkostnaði félagsins.  

Fossar eru leiðandi milliliður fjármagns þegar kemur að frumútgáfu á skuldabréfamarkaði. Bankinn var umsjónaraðili með útgáfu 57 ma.kr. af skuldabréfum fyrirtækja og sveitarfélaga fyrir alls 10 útgefendur. Þrír nýir útgefendur skuldabréfa komu inn á markað með aðkomu Fossa og vorum við áfram leiðandi í að stækka og breikka markaðinn bæði þegar kemur að nýjum útgefendum og fjölbreyttari tegundum skuldabréfa. Við metum mikils það traust sem útgefendur og fjárfestar sýna okkur og munum áfram leggja mikla áherslu á að efla íslenskan skuldabréfamarkað. 

Lánadeild bankans steig eftirtektarverð skref á sviði sérhæfðra lánaverkefna og var mikil gróska í þessum hluta starfseminnar, hvort sem horft er til samsetningar, miðlunar eða sölu verkefna á árinu. Lánabókin stækkaði um tæp 40% á árinu og var um 4,8 ma.kr. í lok árs.  Líftími lánasafnins er tiltölulega stuttur og veltuhraði mikill. Heildarvelta lánabókarinnar á árinu nam um 9 mö.kr., þar af voru um 3 ma.kr. í lánaverkefnum seld áfram til þriðja aðila.  

Innlendur fjármagnsmarkaður er fábrotinn þegar horft er til alþjóðlegrar þróunar á sviði sérhæfðra lánaverkefna (e. private credit). Við sjáum mikil tækifæri til vaxtar á þessu sviði og stefnir bankinn að því  að stíga enn stærri skref í að efla þennan þátt starfseminnar á komandi misserum. Horft er til þess að sækja fram með því að breikka og stækka flóruna í lánaverkefnum, fjölga mótaðilum og auka krosssölu innan samstæðu Skaga á þessu sviði. Enda státa Íslensk verðbréf (ÍV), systurfélag Fossa, sig af góðum árangri við að setja á laggirnar margvíslega sérhæfða lánasjóði.  

Mikil tækifæri eru fyrir hendi í að efla áhuga erlendra fjárfesta á innlendum fjármagnsmarkaði og atvinnulífi þar sem þátttaka þeirra hérlendis er enn langt undir því sem sjá má víðast hvar annars staðar í hinum vestræna heimi. Almennt og sértækt kynningarstarf á margvíslegum skráðum og óskráðum innlendum fjárfestingartækifærum verður ofarlega á baugi og bindum við miklar vonir við afrakstur þess.  

Fossar stigu áfram markverð skref í útgáfu á skuldabréfamarkaði og gáfu út alls 7,5 ma.kr. af markaðspappírum á síðasta ári, þar með talið sína stærstu skuldabréfaútgáfu hingað til að fjárhæð 2,8 ma.kr. Fjármögnunin er samsett af bæði fljótandi og fastvaxtabréfum og veginn fjármagnskostnaður bankans var með um 70 punkta álagi á grunnvexti Seðlabanka Íslands. Horft er til þess að auka hlutfall skráðra skuldaskjala til að styðja við vöxt bankans á árinu. 

Sterkir innviðir, faglegir stjórnarhættir og öflugt starfsfólk eru forsenda þess að Fossar geti vaxið á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Á árinu hlaut bankinn viðurkenningu Stjórnvísi fyrir góða stjórnarhætti, sem er staðfesting á markvissu starfi stjórnenda og starfsmanna við að byggja upp skýrt og gagnsætt stjórnkerfi. Þessir þættir styrkja bæði innri starfsemi og traust viðskiptavina og samstarfsaðila á bankanum 

Ég horfi bjartsýnn til komandi tíma í rekstri og uppbyggingu bankans. Við höfum sótt fram af dug og áræðni með stefnumótandi áherslur bankans að leiðarljósi sem skilaði sér í arðbærum vexti félagsins á árinu. Markmið okkar er að byggja á þessari sýn og sigrum og sækja enn hraðar fram í að festa Fossa í sessi sem leiðandi fjárfestingarbanka á Íslandi. 

Steingrímur Arnar Finnsson
Forstjóri Fossa fjárfestingarbanka

Meira áhugavert efni

Árið 2025

Árið 2025 var viðburðarríkt ár hjá samstæðu Skaga. Góður árangur var í grunnrekstri en öll félög innan samstæðunnar eru í miklum vaxtarfasa.

Lesa meira

Starfsemin

Skagi er móðurfélag VÍS, Fossa og Íslenskra verðbréfa og stefnir á arðbæran vöxt á sviði tryggingastarfsemi, fjárfestingarbankastarfsemi og eignastýringar.

Lesa meira

Sjálfbærni

Við viljum að starfsemi okkar og þjónusta stuðli að sameiginlegum ávinningi fyrir allt samfélagið.

Lesa meira

Lykiltölur

Helstu lykiltölur úr rekstri félagsins árið 2025.

Lesa meira

Ávarp stjórnarformanns

Árið 2025 var að mörgu leyti sterkt rekstrarár hjá samstæðu Skaga. Nú, þremur árum eftir að við kynntum breytta framtíðarsýn fyrir Vátryggingafélag Íslands hf. má segja að við séum byrjuð að uppskera af okkar vinnu.

Lesa meira

Ávarp forstjóra

Það má segja að árið 2025 sé árið þar sem við byrjuðum að uppskera eftir tímabil stefnumótunar og samþættingar árin á undan.

Lesa meira