17.07.2025
Uppgjör Skaga hf. á 2. ársfjórðungi 2025
Besti fjórðungur tryggingastarfsemi VÍS frá skráningu. Fjárfestingatekjur lita áfram afkomu.

Haraldur Þórðarson, forstjóri:
„Góður gangur var í grunnrekstri samstæðu Skaga á öðrum ársfjórðungi ársins. Mestu munaði þar um sögulega góðan árangur tryggingastarfsemi VÍS sem skilaði sínum besta fjórðungi a.m.k. frá skráningu á hlutabréfamarkað árið 2013. Vöxtur tekna af fjármálastarfsemi var í takt við áætlanir á öðrum ársfjórðungi en afkoma var nokkuð lakari. Mikil áhersla er nú lögð á að auka arðsemi af fjármálastarfsemi samhliða tekjuvexti og aukinni stærðarhagkvæmni. Sviptingar á mörkuðum héldu áfram á öðrum ársfjórðungi, sérstaklega fyrri hluta hans, sem höfðu neikvæð áhrif á ávöxtun fjárfestingareigna og jafnframt talsverð áhrif á afkomu samstæðunnar á tímabilinu. Vaxandi kraftur er í krosssölu á milli félaga í samstæðunni sem mun styðja við áframhaldandi tekjuvöxt á komandi misserum. Hagnaður eftir skatta hjá samstæðunni nam 972 m.kr. á öðrum ársfjórðungi“.
Mikill gangur hjá VÍS
Vöxtur hjá VÍS var áfram kröftugur og jukust tekjur af vátryggingasamningum um tæplega 9% á öðrum ársfjórðungi og tæplega 10% á fyrri helmingi ársins. Samstarf við Íslandsbanka hófst formlega á fjórðungnum og hefur það farið virkilega vel af stað. Samhliða auknum vexti hefur afkoma félagsins af vátryggingasamningum aukist, en niðurstaða fjórðungsins og fyrri helmings ársins er sú besta í rúman áratug. Samsett hlutfall var 80,9% á öðrum ársfjórðungi og var 90,6% á fyrstu 6 mánuðum ársins. Rekstrarbati skýrist af áframhaldandi tekjuvexti í tryggingastarfsemi, hagfelldri tjónaþróun og hagræðingu í rekstri. Auk þess koma til jákvæðar matsbreytingar vegna hagstæðrar þróunar fyrri tímabila og vegna erlendrar starfsemi sem hefur verið aflögð. Eins og kom fram í tilkynningu til kauphallar þann 10. júlí sl. höfum við því uppfært horfur um samsett hlutfall ársins og er það nú 92% - 95% (áður 93% - 96%) með markmið <94%.
Ávöxtun fjárfestingareigna undir áætlunum
Fjárfestingartekjur á öðrum fjórðungi námu 536 milljónum eða því sem nemur 1,2% nafnávöxtun samanborið við 0,4% hækkun viðmiðs. Fjárfestingatekjur fyrstu 6 mánuði ársins nema samtals 39 m.kr eða sem nemur 0,1% ávöxtun. Ljóst er að erfiðir mánuðir á hlutabréfamarkaði höfðu talsverð áhrif á ávöxtun fjárfestingareigna og þar með afkomu samstæðunnar í heild á fyrri hluta ársins en vigt skráðra hlutabréfa í safninu hefur þó lækkað nokkuð síðan um áramót.
Heilbrigður tekjuvöxtur í fjármálastarfsemi
Tekjur í fjármálastarfsemi héldu áfram að vaxa samanborið við fyrra ár. Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 1.512 milljónum á fyrri árshelmingi samanborið við 960 milljónir árið áður og nemur vöxturinn því 552 milljónum á milli ára eða 58%. Við sáum aukinn kraft í vexti eigna í stýringu og höfum nú hafið krosssölu sjóða ÍV til viðskiptavina VÍS sem njóta nú góðs af breiðara vöruframboði samstæðufélaga. Tekjur af eigna- og sjóðastýringu skila um þriðjungi tekna í fjármálastarfsemi og hyggjumst við halda áfram að vaxa á þessu sviði samhliða auknu framboði sjóða. Í fjármálastarfsemi færist nú aukin áhersla á að skila arðsemi samhliða því að sækja áframhaldandi tekjuvöxt.
Tækifæri í samþjöppun á fjármálamarkaði
Nokkuð hefur borið á samtölum á milli fjármálastofnana þar sem áhugi á sameiningum hefur verið viðraður með það að markmiði að auka skilvirkni og stærðarhagkvæmni í fjármálastarfsemi hér á landi. Nýverið tóku stjórnir tveggja viðskiptabanka ákvörðun um að hefja formlegar samrunaviðræður. Verði sá samruni að veruleika mun áberandi áskorandi hverfa af fjármálamarkaði. Skagi hefur verið virkur þátttakandi í þróun á fjármálamarkaði og við teljum að talsverð tækifæri séu fólgin í stöðu okkar í þessu umhverfi, bæði hvað varðar innri- og ytri vöxt, ekki síst ef samruna stærri aðila verða sett skilyrði sem munu þjóna því markmiði að efla aðra keppinauta á markaðnum.
Helstu lykiltölur H1 2025
- Tap samstæðu eftir skatta nam 380 m.kr. (H1 2024: +273 m.kr.).
- Vöxtur tekna í tryggingastarfsemi 9,9% og afkoma af tryggingasamningum nam 1.449 m.kr. (H1 2024: 453 m.kr.) sem samsvarar 996 m.kr. afkomubata á milli ára.
- Samsett hlutfall 90,6% (H1 2024: 96,8%)
- Kostnaðarhlutfall í tryggingastarfsemi er 18,8% (H1 2024: 20,3%)
- Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 1.512 m.kr. (H1 2024: 960 m.kr.) og uxu um 58% á milli ára
- Fjárfestingartekjur námu 39 m.kr. (H1 2024: 1.298 m.kr.) og hreinar fjárfestingartekjur voru neikvæðar um 1.155 m.kr. (H1 2024: 519 m.kr.). Í samanburði á milli ára nema áhrifin af mismun á hreinum fjárfestingatekjum 1.674 m.kr. til lækkunar á afkomu samstæðunnar.
Sjá einnig kauphallartilkynningu Skaga og upptöku af kynningarfundi fyrir fjárfesta.