26.08.2026

Tryggingarekstur áfram sterkur

Erfitt árferði á mörkuðum litar afkomu af fjármálastarfsemi og fjárfestingum

mynd

Uppgjör Skaga hf. á 2. ársfjórðungi 2026

Afkoma af tryggingastarfsemi samstæðu Skaga var áfram sterk á öðrum ársfjórðungi ársins 2026 og var samsett hlutfall á fyrri helmingi ársins það lægsta síðan 2007. Erfitt árferði á mörkuðum litaði hins vegar afkomu af fjármálastarfsemi og fjárfestingum á tímabilinu.

Hagnaður samstæðunnar eftir skatta nam 731 m.kr. á öðrum ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár var 12,9% á ársgrundvelli.

Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga:

„Rekstur samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi einkenndist af góðum árangri í bland við áskoranir. Afkoma af grunnrekstri dróst lítillega saman frá fyrra ári þrátt fyrir áframhaldandi góðan takt í tryggingastarfseminni þar sem neikvæð afkoma af fjármálastarfseminni á tímabilinu vó þar á móti. Í kjölfar stefnurýni félagsins, þar sem lögð var áhersla á einföldun og kostnaðarhagræði, komu skipulagsbreytingar til framkvæmda á fjórðungnum og var kostnaður þeim tengdum gjaldfærður að fullu á tímabilinu.

Afkoma af tryggingastarfsemi var áfram sterk og endurspeglar öflugan undirliggjandi rekstur, arðbæran iðgjaldavöxt og markvissa áherslu á rekstrarhagkvæmni. Horfur félagsins hafa verið uppfærðar í kjölfar betri þróunar en áður var gert ráð fyrir. Tekjuvöxtur hefur verið kröftugur síðustu ár og hefur viðskiptavinum VÍS fjölgað jafnt og þétt. Þá hafa allir helstu þjónustu- og ánægjumælikvarðar þróast í rétta átt en VÍS leggur ríka áherslu á framúrskarandi þjónustu og að styrkja enn frekar tengslin við viðskiptavini um allt land. Þessi árangur staðfestir enn og aftur að sú stefna sem félagið hefur markað er að skila árangri.

Afkoma fjárfestinga var hins vegar undir markmiðum og viðmiði á ársfjórðungnum, sem skýrist að mestu af neikvæðri ávöxtun bæði skráðra og óskráðra hlutabréfa. Þá var annar ársfjórðungur undir væntingum í fjármálastarfseminni, einkum vegna lægri þóknanatekna hjá Fossum í markaðsviðskiptum og fyrirtækjaráðgjöf.

Þrátt fyrir útgreiðslur til hluthafa upp á 1.792 m.kr. á fyrri helmingi ársins í gegnum endurkaup og arðgreiðslur er eiginfjárstaða félagsins áfram sterk og gjaldþolshlutfall samstæðu um 1,3 í lok tímabilsins. "

Helstu lykiltölur 1H 2026:

  • Hagnaður samstæðu fyrir skatta nam 704 m.kr. (1H 2025: - 104 m.kr.) og eftir skatta nam hagnaður fyrri árshelmings 395 m.kr. (1H 202 5: - 380 m.kr.)
  • Hagnaður af grunnrekstri fyrir skatta nam 1.100 m.kr. (1H 2025: 1.046 m.kr.).
  • Vöxtur tekna af vátryggingarsamningum nam 7,1% og afkoma af vátryggingarsamningum nam 1.584 m.kr. (1H 2025: 1.449 m.kr.) sem samsvarar 135 m.kr. afkomubata á milli ára.
  • Samsett hlutfall 90,4% (1H 2025: 90,6%) — það lægsta síðan 2007.
  • Kostnaðarhlutfall í tryggingastarfsemi var 18,5% (1H 2025: 18,8%).
  • Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 1.380 m.kr. (1H 2025: 1.512 m.kr.) og lækkuðu um 9% á milli ára.
  • Fjárfestingartekjur námu 762 m.kr. (1H 2025: -13 m.kr.) en hreinar fjárfestingartekjur voru neikvæðar um 396 m.kr. (1H 2025: -1.150 m.kr.).

Sjá einnig uppgjörstilkynningu Skaga til Kauphallarinnar og upptöku af kynningarfundi fyrir fjárfesta.

Fréttasafn