18.03.2026
Staða Skaga sterk í núverandi umhverfi
Aðalfundur Skaga hf. fór fram í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla 3 í Reykjavík 17. mars 2026. Á fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf.

Í ávarpi Stefáns Héðins Stefánssonar, stjórnarformanns Skaga, á fundinum fór hann yfir hvernig síðustu ár hefðu verið ár mikilla breytinga hjá Skaga og þann markverða árangur sem náðst hefði með innri og ytri vexti.
„Ef við lítum fram á veginn er verkefnið nú að skerpa enn frekar sýn okkar á vöxt og arðsemi einstakra rekstrareininga innan samstæðunnar og halda þar áfram sterkum takti. Félagið hefur skýran fókus á fjárhagslegt öryggi viðskiptavina – hvort sem um er að ræða tryggingar, fjármögnun eða fjárfestingar. Við teljum stöðu félagsins sterka í núverandi umhverfi,“ sagði Stefán.

Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður Skaga, flytur ávarp á aðalfundi 2026. Mynd/Anton Brink.
Skagi væri jafnframt reiðubúinn að taka þátt í frekari þróun og hagræðingu á markaði gæfust tækifæri sem samræmdust hagsmunum hluthafa og forsendur væru réttar. Hann vék einnig orðum sínum að samrunaviðræðunum við Íslandsbanka og lýsti viðhorfi Skaga til þeirra. Það hefðu verið vonbrigði, eftir mikla og mjög góða vinnu af hálfu beggja aðila, að fá fram kröfur Íslandsbanka um verulegar breytingar á gagngjaldi – umfram þau efnislegu atriði sem komið höfðu fram í ferlinu og Skagi var reiðubúinn að ræða.
Á aðalfundinum var sjálfkjörið í stjórn og varastjórn félagsins og er hún því óbreytt á milli ára. Þá var ársreikningur fyrir árið 2025 samþykktur, auk þess sem fundurinn samþykkti að greiða hluthöfum arð sem nemur um 0,3988 kr. á hlut fyrir reikningsárið 2025.
Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar jafngildir 760 milljón krónum, að teknu tilliti til eigin bréfa félagsins. Þá var samþykkt starfskjarastefna og kaupaukakerfi fyrir árið 2026 auk breytinga á samþykktum félagsins.
Í aðalstjórn Skaga eru:
- Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður
- Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar
- Hrund Rudolfsdóttir
- Marta Guðrún Blöndal
- Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason
Og í varastjórn eiga sæti:
- Ragnheiður H. Magnúsdóttir
- Sveinn Friðrik Sveinsson

Stjórn Skaga: Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, Hrund Rudolfsdóttir, Stefán Héðinn Stefánsson, Marta Guðrún Blöndal og Vilhjálmur Egilsson. Mynd/Anton Brink
Sjá einnig kauphallartilkynningu Skaga. Frekari upplýsingar um dagskrá fundarins og gögn honum tengd má finna HÉR á vef Skaga.