25.08.2026

Skagi og VÍS fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Skagi og dótturfélagið VÍS hafa hlotið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026. Alls hlutu átján íslensk fyrirtæki viðurkenninguna að þessu sinni.

mynd
Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Að verkefninu standa Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Viðurkenningarnar byggja á úttektum á stjórnarháttum fyrirtækjanna og taka mið af leiðbeiningum um stjórnarhætti sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi gefa út.

Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og styrkja innviði fyrirtækja með því að hvetja til skýrra skilgreininga á ábyrgð og ákvarðanatöku meðal stjórna og stjórnenda. Góðir stjórnarhættir stuðla að faglegum ákvörðunum, ábyrgari rekstri og bættri samskiptamenningu innan fyrirtækja.

„Góðir stjórnarhættir eru grundvallaratriði í rekstri samstæðu Skaga. Þeir skapa skýra umgjörð um ákvarðanatöku stjórna og stjórnenda og stuðla að því að hagsmunir viðskiptavina, hluthafa og starfsfólks séu ávallt hafðir að leiðarljósi. Viðurkenningin er staðfesting á þeirri vinnu sem lögð er í faglega stjórnarhætti innan samstæðunnar og um leið hvatning til að halda áfram á sömu braut. Ég óska stjórnum og starfsfólki Skaga og VÍS til hamingju með árangurinn,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga.

Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Nauthóli fimmtudaginn 20. ágúst. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, afhenti viðurkenningarnar.

Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, Vilhjálmur Egilsson, formaður stjórnar VÍS og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.