28.10.2026
Skagi einfaldar skipulag samstæðunnar og Guðný Helga Herbertsdóttir tekur við forystu
Starfsemi samstæðu Skaga færist undir VÍS tryggingar samkvæmt nýju skipulagi sem stjórn Skaga hf. hefur samþykkt. Fossar verða dótturfélag VÍS og ÍV dótturfélag Fossa.

Samhliða verður eignastýringarþjónusta Fossa og ÍV sameinuð hjá ÍV, líkt og þekkist hjá öðrum fjármálafyrirtækjum. Breytingarnar miða að því að draga úr kostnaði, laga starfsemina að núverandi markaðsaðstæðum og styrkja félögin til vaxtar. Að meðtöldum aðgerðum fyrr á árinu lækkar kostnaðargrunnur samstæðunnar um samtals 610 milljónir króna á ári.
Horft er til þekktra fyrirmynda í nágrannalöndum þar sem hreint eignarhaldsfélag er efst í samstæðunni, en endanleg útfærsla ræðst af samtali við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Stjórn hefur þegar hafið undirbúning og breytingarnar koma til framkvæmda á komandi mánuðum. Þær eru háðar hefðbundnum fyrirvörum um samþykki hluthafa og eftirlitsaðila.
Breytingar í forystu
Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, leiðir samstæðuna frá og með deginum í dag en hún hefur leitt umbreytingu VÍS trygginga frá ársbyrjun 2023 og stýrir félaginu áfram samhliða nýju hlutverki.
Haraldur I. Þórðarson lætur af störfum sem forstjóri samkvæmt samkomulagi við stjórn. Hann mun áfram gegna stjórnarstörfum innan samstæðunnar og verða félaginu innan handar næstu misseri.
Kostnaður lækkar um 610 milljónir króna á ári
Skipulagsbreytingarnar eiga að lækka kostnað um 270 milljónir króna á ársgrundvelli með lægri stjórnunarkostnaði, fækkun stöðugilda og tilfærslu verkefna og starfa. Þá er horft til uppgreiðslu og endurfjármögnunar útistandandi skuldagerninga, þar á meðal víkjandi skuldabréfs að hluta. Það lækkar kostnað um allt að 160 milljónir króna á ári. Þann 28. apríl síðastliðinn voru kynntar aðgerðir sem lækkuðu kostnað um 180 milljónir króna. Að þeim meðtöldum lækkar kostnaðargrunnur samstæðunnar samtals um 610 milljónir króna á ári.

Áætlaður árlegur sparnaður þegar allar aðgerðir eru að fullu komnar til framkvæmda.
Markaðsaðstæður þróast með öðrum hætti en vænst var
Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður Skaga, segir að krefjandi markaðsaðstæður hafi haft veruleg áhrif á ávöxtun fjáreigna tryggingafélagsins. Þær hafi líka haft áhrif á rekstur fjármálastarfseminnar og möguleika á að ná þeim markmiðum sem lagt var upp með. Sú samþjöppun á fjármálamarkaði sem væntingar stóðu til hafi ekki gengið eftir og forsendur fyrir vexti því þróast með öðrum hætti en gert var ráð fyrir.
„Við höfum náð góðum árangri á mörgum sviðum í umbreytingu félagsins, sérstaklega í rekstri tryggingafélagsins og uppbyggingu eignastýringar. Með breytingunni nú viljum við laga félagið enn frekar að aðstæðum á markaði. Við sköpum félögunum betri forsendur til að verða enn öflugri, nýtum sameiginlega styrkleika og eflum þjónustuna við viðskiptavini enn frekar. Nánara samstarf og hagkvæmari rekstur munu styrkja samkeppnisstöðu þeirra og auka svigrúm til sóknar,“ segir Stefán.
Hann þakkar Haraldi fyrir hönd stjórnar fyrir gott samstarf við uppbyggingu, þróun og mótun félagsins. Hann bætir við að stjórnin vænti mikils af Guðnýju Helgu, sem leitt hafi umbreytingarferli VÍS trygginga með frábærum árangri.
Langtímahagsmunir félagsins að leiðarljósi
„Undanfarin ár hafa verið viðburðarík hjá samstæðu Skaga og við höfum náð eftirtektarverðum árangri á mörgum sviðum starfseminnar. Á sama tíma hefur þróun fjármálamarkaðar verið önnur en við væntum og rekstrarumhverfi fjárfestinga- og fjármálastarfsemi reynst krefjandi. Við þessar aðstæður er ábyrgðarhluti að endurmeta áherslur og skipulag með langtímahagsmuni félagsins og haghafa þess að leiðarljósi. Ég er sannfærður um að þær breytingar sem nú er ráðist í muni styrkja samstæðuna til framtíðar og skapa forsendur fyrir áframhaldandi verðmætasköpun. Ég lít til baka með stolti yfir því sem við höfum áorkað á undanförnum árum og hlakka til að leggja mitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar Skaga í gegnum stjórnarstörf og sem hluthafi,“ segir Haraldur I. Þórðarson, fráfarandi forstjóri Skaga.
Sókn samhliða aðhaldi í rekstri
Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri samstæðunnar og VÍS trygginga, segist taka við nýju hlutverki með mikla trú á framtíð samstæðunnar og hlakka til að leiða hana áfram.
„Í félögunum býr mikil þekking, öflug þjónusta og verðmæt viðskiptasambönd sem við ætlum að byggja á. Við munum sækja fram af krafti og um leið gæta aðhalds í rekstri. Með nánara samstarfi félaganna og hagkvæmni í rekstri verðum við vel búin undir framtíðina og tilbúin að grípa tækifærin þegar markaðsaðstæður batna,“ segir Guðný Helga.