20.02.2026

Mikil aukning afkomu af grunnrekstri

Verulegur afkomubati varð af grunnrekstri samstæðu Skaga hf. á árinu 2025 sem einnig var metár í tryggingastarfsemi. Hagnaður ársins nam 1.902 milljónum króna og arðsemi eigin fjár var 8,6 prósent.

mynd

„Árið 2025 var viðburðaríkt hjá Skaga samstæðunni og vel gekk á flestum vígstöðvum, sér í lagi í grunnrekstri samstæðunnar þar sem rekstrarafkoma þrefaldaðist á milli ára. Segja má að 2025 sé árið sem við byrjum að uppskera eftir tímabil endurskipulagningar og samþættingar. Ávöxtun fjárfestingareigna var hins vegar undir markmiðum og lítillega undir viðmiðunarvísitölu, en nokkru betri en hjá samkeppnisaðilum. Þar gætir helst áhrifa af neikvæðri þróun á hlutabréfamörkuðum,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga.

Í afkomubata ársins munaði mestu um sögulega góðan rekstrarárangur í tryggingastarfsemi félagsins en afkoma af tryggingum var sú besta í sögu VÍS. Sömuleiðis heldur VÍS áfram sterkum tekjuvexti, talsvert umfram markaðinn, eða um 9,5 prósent á milli ára. Áframhaldandi áhersla á tekjuvöxt í fjármálastarfseminni hefur einnig skilað sér í aukinni stærðarhagkvæmni og samhliða því betri arðsemi.

Samþættingu á starfsemi Íslenskra verðbréfa inn í samstæðu Skaga lauk á árinu og tekjur af fjármálastarfsemi samstæðunnar jukust um 36 prósent milli ára í takti við sett markmið. Afkoma jókst töluvert milli ára og eru bundnar vonir við að frekari vöxtur skili sér áfram í aukinni arðsemi af fjármálastarfsemi.

Áætlun samstæðu Skaga fyrir yfirstandandi ár gerir ráð fyrir að hagnaður verði 4,1 milljarðar króna eftir skatta, sem samsvarar 16 prósenta arðsemi eiginfjár, en félagið hefur að markmiði að skila yfir 15 prósenta arðsemi eiginfjár.

Helstu lykiltölur 2025

Samstæðan:

  • Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)
  • Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)
  • Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)
  • Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)
  • Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.
  • Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins.

Tryggingastarfsemi:

  • Áframhaldandi sterkur tekjuvöxtur í tryggingastarfsemi VÍS sem óx um 9,5% á milli ára.
  • Tekjuvöxtur í líf- og sjúkdómatryggingum nam 12,2% milli ára.
  • Samsett hlutfall var 90,7% (2024: 94,9%) og er vel umfram upphafleg markmið ársins um <94%.
  • Kostnaðarhlutfall var 18,1% (2024: 19,1%).
  • Afkoma af vátryggingasamningum nam 2.970 m.kr. (2024: 1.479 m.kr.) en það er besta afkoma af tryggingarrekstri frá stofnun félagsins.

Fjármálastarfsemi:

  • Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 3.188 m.kr. (2024: 2.342m.kr.) sem er 36% vöxtur á milli ára og tekjumarkmið um > 3.100 m.kr. í fjármálastarfsemi náðust.
  • Eignir í stýringu (e. AuM) stóðu í 253 ma.kr. við lok tímabilsins og nam vöxtur um 26 ma.kr. á milli ára og markmið um að ná >250 milljörðum í stýringu hafa einnig náðst.
  • Afkoma af fjármálastarfsemi var 238 m.kr. fyrir skatta (2024: 18 m.kr.). Jákvæður skattur leiðir til afkomu eftir skatta uppá 299 m.kr. í fjármálastarfsemi, sem samsvarar 9,3% arðsemi efnislegs eiginfjár í fjármálastarfsemi.

Fjárfestingar:

  • Fjárfestingartekjur námu 2.355 m.kr (2024: 3.657 m.kr.) sem samsvarar 5,2% ávöxtun (2024: 8,3%) sem kemur að mestu fram á fjórða ársfjórðungi (4,0%).
  • Ávöxtun af fjárfestingum undir markmiði og örlítið undir viðmiðunarvísitölu á tímabilinu.
  • Hreinar tekjur af fjárfestingum voru jákvæðar um 20 m.kr. (2024: 1.760 m.kr.) en þær litast af neikvæðri ávöxtun skráðra hlutabréfa og háum fjármagnsliðum.

Helstu lykiltölur 4F 2025:

  • Hagnaður eftir skatta nam 1.521 m.kr. (4F 2024: 1.557 m.kr.).
  • Hagnaður á hlut nam 0,8 kr. á tímabilinu.
  • Arðsemi eigin fjár var 26,4% á ársgrundvelli (4F 2024: 29,0%)
  • Vöxtur tekna í tryggingastarfsemi 8,7% og afkoma af tryggingasamningum nam 50 m.kr. (2024: 437 m.kr.)
  • Samsett hlutfall var 99,4% (4F 2024: 94,2%).
  • Kostnaðarhlutfall var 18,7% (4F 2024: 19,8 %).
  • Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 976 m.kr. (4F 2024: 892 m.kr.) sem er 9% vöxtur á milli ára, en afkoma af fjármálastarfsemi var 236 m.kr. fyrir skatta (4F 2024: 169 m.kr.).
  • Fjárfestingartekjur námu 1.846 m.kr (4F 2024: 1.646 m.kr.) sem samsvarar 4,0% ávöxtun en ávöxtun af fjárfestingum var í takti við viðmiðunarvísitölu á tímabilinu.

Uppgjörstilkynningu Skaga til Nasdaq Iceland má finna HÉR og lista yfir tilkynningar Skaga til Kauphallarinnar HÉR.

Frekari upplýsingar og upptöku af fjárfestakynningu vegna uppgjörsins er að finna HÉR.