29.04.2026
Jákvæð afkoma af tryggingarekstri stóð upp úr á fyrsta fjórðungi
Tekjur og afkoma af grunnrekstri samstæðu Skaga jukust á milli ára á fyrsta ársfjórðungi og afkoma grunnrekstrar samstæðunnar var umfram áætlun á tímabilinu. Afkoma tryggingarekstrar var áfram góð en afkoma fjárfestinga og fjármálastarfsemi var undir markmiðum.

Á fyrsta ársfjórðungi nam tap eftir skatta 336 milljónum króna og arðsemi eigin fjár var neikvæð um 5,7 prósent á ársgrundvelli.
„Jákvæð afkoma af tryggingarekstri stóð upp úr á fjórðungnum en fyrsti ársfjórðungur er jafnan sá þyngsti vegna árstíðarbundins tjónaþunga,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga. „Tekjur af fjármálastarfseminni drógust saman en vegna aðhalds á kostnaðarhlið batnaði afkoman þó lítillega þrátt fyrir lægri þóknanatekjur. Vaxtamunur bankans hefur farið hratt vaxandi og var hærri á ársfjórðungnum en nokkru sinni fyrr.“
Haraldur bendir á að afkoma fjárfestinga hafi verið ágæt í ljósi markaðsaðstæðna og talsvert umfram viðmiðunarvísitölu.
Skagi hefur kynnt uppfærðar áherslur í kjölfar stefnurýni, en þær miða að því að auka arðsemi félagsins eftir umbreytingar síðustu ára með aðgerðum í átt að einfaldara stjórnskipulagi og auknu hagræði af rekstri samstæðunnar.
Þá segir Haraldur að ráðist verði í sértæk verkefni sem miði að því að nýta styrkleika samstæðunnar til að ná fram hagkvæmari fjármagnsskipan og auka samningsbundnar tekjur í fjármálastarfsemi.
Helstu lykiltölur fyrsta ársfjórðungs 2026:
- Tap eftir skatta nam 336 m.kr. (1F 2025: -1.353 m.kr.).
- Tap af grunnrekstri nam 81 m.kr. (1F 2025: -284 m.kr.).
- Hagnaður á hlut nam -0,18 kr. á tímabilinu.
- Arðsemi eigin fjár er -5,7% á ársgrundvelli (1F 2025: -25,1%)
- Vöxtur tekna af vátryggingasamningum var 6,9% og afkoma nam 138 m.kr. (1F 2025: -51 m.kr.)
- Samsett hlutfall var 98,3% (1F 2025: 100,7%).
- Kostnaðarhlutfall í tryggingastarfsemi var 19,1% (1F 2025: 19,2%).
- Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 714 m.kr. (1F 2025: 780 m.kr.) sem er 9% samdráttur á milli ára, en afkoma af fjármálastarfsemi var -20 m.kr. fyrir skatta (1F 2025: -34 m.kr.).
- Fjárfestingartekjur námu 366 m.kr (1F 2025: -522 m.kr.) sem samsvarar 0,7% ávöxtun.
Uppgjörstilkynningu Skaga til Nasdaq Iceland má finna HÉR og lista yfir tilkynningar Skaga til Kauphallarinnar HÉR.
Frekari upplýsingar og upptöku af fjárfestakynningu vegna uppgjörsins má svo finna HÉR.