28.10.2026
Hagnaður fyrstu níu mánaða þrefaldast milli ára
Skipulag einfaldað og kostnaður lækkaður til að mæta krefjandi markaðsaðstæðum.

Uppgjör Skaga hf. á 3. ársfjórðungi 2026
Afkoma af tryggingastarfsemi samstæðu Skaga var afar sterk á þriðja ársfjórðungi ársins 2026 og var niðurstaða VÍS sú besta í nær tvo áratugi. Krefjandi aðstæður á mörkuðum lituðu hins vegar afkomu af fjármálastarfsemi og fjárfestingum á tímabilinu.
Hagnaður samstæðunnar eftir skatta nam 812 m.kr. á þriðja ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár var 14,2% á ársgrundvelli. Á fyrstu níu mánuðum ársins ríflega þrefaldaðist hagnaður á milli ára.
Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri Skaga:
„Í gær voru tilkynntar umfangsmiklar breytingar á samstæðunni sem gert er ráð fyrir að skili um 430 milljóna króna sparnaði á ársgrundvelli þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda. Sá sparnaður bætist við þær 180 milljónir króna sem tilkynnt var um í öðrum ársfjórðungi. Með breytingunum er brugðist við erfiðum markaðsaðstæðum með því að þétta raðirnar, skýra ábyrgð og draga verulega úr kostnaði. Þannig styrkjum við reksturinn og búum okkur undir að grípa tækifærin þegar markaðsaðstæður batna á ný.“
Guðný Helga segir rekstur samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi hafa verið góðan á heildina litið. Afkoma af grunnrekstri hafi aukist á milli ára, borin uppi af afar sterkum tryggingarekstri. Afkoma af fjármálastarfsemi hafi hins vegar verið neikvæð vegna þungs rekstrarumhverfis og neikvæð ávöxtun skráðra hlutabréfa hafi litað afkomu af fjárfestingum.
Þá bendir hún á að samsett hlutfall VÍS á fjórðungnum hafi verið 80,9%, það lægsta í nær tvo áratugi. VÍS hafi vaxið hraðar en markaðurinn í heild í um tvö ár, viðskiptavinum fjölgi og kostnaðarhlutfallið hafi aldrei verið lægra. Hún segir jafnframt að hagræðingaraðgerðir Fossa séu byrjaðar að skila lækkun á kostnaði og að Fossar hafi verið með stærstu hlutdeild í miðlun í Kauphöllinni á fjórðungnum.
Guðný Helga segir Íslensk verðbréf komin í fremstu röð á aðeins þremur árum. Frá stofnun SIV, sem sameinaðist ÍV á síðasta ári, hafi tekist að byggja upp öflugt eignastýringarfélag sem skeri sig úr á markaðnum. Íslensk verðbréf hafi vaxið hraðar en helstu samkeppnisaðilar. Þóknanatekjur hafi aukist um 18% á fyrstu níu mánuðum ársins. Eignir í stýringu í fjármálastarfsemi samstæðunnar hafi numið 245 ma.kr. í lok tímabilsins og aukist um 3,8% á milli ára.
Helstu lykiltölur 9M 2026:
- Hagnaður samstæðu fyrir skatta nam 1.928 m.kr. (9M 2025: 952 m.kr.) og eftir skatta nam hagnaður fyrstu níu mánaða 1.207 m.kr. (9M 2025: 337 m.kr.).
- Hagnaður af grunnrekstri fyrir skatta nam 2.555 m.kr. (9M 2025: 2.373 m.kr.) og er þegar kominn yfir markmið ársins.
- Vöxtur tekna af vátryggingasamningum nam 7,4% og afkoma af vátryggingasamningum nam 3.315 m.kr. (9M 2025: 2.920 m.kr.), sem samsvarar 395 m.kr. afkomubata á milli ára.
- Samsett hlutfall 87,0% (9M 2025: 87,7%) og 80,9% á þriðja ársfjórðungi (3F 2025: 82,4%).
- Kostnaðarhlutfall í tryggingastarfsemi var 17,2% (9M 2025: 17,9%).
- Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 1.961 m.kr. (9M 2025: 2.212 m.kr.) og lækkuðu um 11% á milli ára.
- Fjárfestingartekjur námu 999 m.kr. (9M 2025: 431 m.kr.) en hreinar fjárfestingartekjur voru neikvæðar um 835 m.kr. (9M 2025: -1.482 m.kr.).
- Eignir í stýringu námu 245 ma.kr. (30.9.2025: 236 ma.kr.).
Sjá einnig uppgjörstilkynningu Skaga til Kauphallarinnar og upptöku af kynningarfundi fyrir fjárfesta.