26.08.2024

Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum

Við erum afar stolt af dótturfélögunum VÍS og Fossum fjárfestingarbanka sem hlutu nýlega viðurkenningu Stjórnvísi fyrir góða stjórnarhætti og hlutu þá um leið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.

mynd
Fulltrúar fyrirtækjanna veittu viðurkenningunni móttöku við hátíðlega athöfn á Nauthóli.

Stjórnvísi, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland veita viðurkenningarnar. Fyrirmyndarfyrirtækin, sem eru 18 samtals, eru í afar fjölbreyttri starfsemi svo sem fjármála- og tryggingastarfsemi, fjarskipti, leigustarfsemi, eignaumsýslu og ferðaþjónustu.

Eftirtalin fyrirtæki voru að þessu sinni metin sem Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum:

  • Arion banki hf.
  • Eik fasteignafélag hf.
  • Fossar fjárfestingarbanki hf.
  • Heimar hf.
  • Icelandair Group hf.
  • Íslandssjóðir hf.
  • Kvika banki hf.
  • Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
  • Orkan IS ehf.
  • Reiknistofa bankanna hf.
  • Reitir hf.
  • Sjóvá hf.
  • Stefnir hf.
  • Sýn hf.
  • TM tryggingar hf.
  • Vátryggingafélag Íslands hf.
  • Vörður hf.
  • Ölgerðin Egill Skallagríms hf.