
Stjórn
Stefán Héðinn Stefánsson
Stjórnarformaður
Stefán tók sæti í stjórn Skaga í mars 2020. Hann hefur staðist hæfismat Fjármálaeftirlitsins.
Fæðingarár: 1971
Menntun: M.Sc. í International Shipping and Finance frá viðskiptaháskólunum Alba og Henley. Msc. í International Securities, Investments and Banking frá Háskólanum í Reading og Cand. Ocean. gráða í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Próf í verðbréfaviðskiptum.
Aðalstarf: Forstjóri skipafélaganna Torcargo BV og Torcargo ehf., og framkvæmdastjóri A-ráðgjafar ehf.
Starfsreynsla: Aðstoðarforstjóri Sögu fjárfestingarbanka (2010-2011), framkvæmdastjóri eignarstýringarsviðs Landsbankans (2003-2008) og framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsbankans (2001-2003).
Önnur stjórnarseta: Torcargo BV (stjórnarmaður), A-ráðgjöf ehf. (stjórnarmaður), TC holding ehf (stjórnarformaður), Torcargo ehf. (stjórnarformaður), CT orka ehf. (stjórnarformaður), Tor akstur (stjórnarmaður), LCT shipping BV (stjórnarmaður), Sp/f North West Chartering (stjórnarformaður).
Hlutafjáreign í Skaga og óhæði: Stefán á 500.000 hluti í Skaga og 1.700.000 hluti í gegnum A-ráðgjöf ehf. Stefán telst óháður félaginu.
Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila Skaga.