Hoppa yfir valmynd

Stjórn

Hrund Rudolfsdóttir

Stjórnarmaður

Hrund tók sæti í stjórn Skaga í mars 2024. Hún hefur ekki verið boðuð í hæfismat fjármálaeftirlitsins.

Fæðingarár: 1969

Menntun: Meistaragráða í alþjóða viðskiptum frá Copenhagen Business School og Cand.Oecon gráða frá Háskóla Íslands. Auk þess kláraði Hrund AMP gráðu frá IESE í New York á árinu 2018.

Aðalstarf: Framkvæmdastjóri Sólvalla rekstrarfélags ehf.

Starfsreynsla: Forstjóri Veritas samstæðunnar 2013-2023 og stjórnarformaður allra dótturfyrirtækja Veritas. Árin 2009-2013 var hún framkvæmdastjóri mannauðsmála í Marel og sat í framkvæmdastjórn félagsins. Framkvæmdastjóri rekstrar- og fjárfestingaverkefna í erlendum heilbrigðistengdum fjárfestingum Milestone 2003-2009 og rekstrarstjóri og framkvæmdastjóri Lyf&heilsu 2001-2006.

Önnur stjórnarseta: Stjánkur ehf., Veitur ohf., Expectus ehf., Nova hf., Nova klúbburinn hf.

Hlutafjáreign í Skaga og óhæði: Hrund á enga hluti í Skaga og telst óháð félaginu.

Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptaðila eða samkeppnisaðila Skaga.